Hagnýting gervigreindar í rekstri
Wed 07 Oct
|Fantasía, Vinnustofa Kjarvals
Fyrsti fundur gervigreindarhóps Reykjavík Fintech, sem dr. Hanna Kristín Skaftadóttir stýrir. Anna Garðarsdóttir gervigreindarráðgjafi, Jón Atli Tómasson, deildarstjóri hjá Íslandsbanka, og Áslaug Björgvinsdóttir, lögmaður og meðeigandi LOGOS, verða með erindi á fundinum.


Time & Location
07 Oct 2026, 17:00 – 19:00
Fantasía, Vinnustofa Kjarvals, Austurstræti 10a, 101 Reykjavík, Ísland
About the Event
Hagnýting gervigreindar í rekstri
Reykjavík Fintech boðar til fyrsta fundar gervigreindarhóps Reykjavík Fintech miðvikudaginn 7. október kl. 17:00 í Fantasíu, viðburðasal Vinnustofu Kjarvals. Húsið opnar kl. 16:45 og eru gestir hvattir til að mæta tímanlega. Gengið er inn hægra megin við aðalinngang Kjarvals í Austurstræti. Um er að ræða opinn viðburð og allir velkomnir, en skráning nauðsynleg.
Á fundinum verður sjónum beint að hagnýtingu gervigreindar í rekstri, þeim tækifærum sem tæknin skapar og þeim áskorunum sem fyrirtæki standa frammi fyrir við innleiðingu hennar. Viðburðurinn höfðar því til allra sem hafa áhuga á því hvernig best megi hagnýta gervigreind í rekstri.
Hanna Kristín Skaftadóttir, dósent með doktorspróf á sviði gervigreindar og sjálfvirknivæðingar ferla í viðskiptum, er formaður gervigreindarhóps Reykjavík Fintech og mun stýra viðburðinum.
Dagskrá
16:45 Húsið opnar, kaffi og tengslamyndun
